Bókaðu hótel á besta stað í Kaupmannahöfn
Eitt af glæsilegustu hótelunum í Danmörku
Hótel Skt. Petri er staðsett í innri bæ í miðborg Kaupmannahafnar og staðsetningin getur ekki verið þægilegri. Hótelið er eitt af glæsilegustu hótelum í Danmörku og stæði fyllilega undir 5 stjörnum ef sá mælikvarði væri notaður af hótelinu.
Fjölbreyttur morgunverður ásamt veglegum matseðli í aðal veitingasal og síðan sérréttir á matsölustaðnum „Dada“ sem er á jarðhæð hótelsins. Frítt net, fjölrása sjónvarpskerfi, loftkæling, minibar, business center, líkamsræktarsalur í kjallara ásamt Sauna (frír aðgangur), útiaðstaða fyrir gesti sem reykja, útibar á sumrin og mjög rúmgóð aðstaða í veitingasal.
Samningsverð
Við erum með samningsverð sem við getum ekki sýnt á heimasíðu okkar en eru ávallt þau lægstu mögulegu hverju sinni. Þegar þú bókar færðu sent verðtilboð samhliða staðfestri bókun og ef þú ert ekki sátt(ur) afbókum við samstundis án endurgjalds.
Engin fyrirframgreiðsla
Þegar þú pantar gistingu hjá okkur þarftu ekki að greiða neitt fyrirfram. Þú greiðir fyrir gistinguna við brottför af hótelinu en þarft að gefa gestamóttöku upp kortaupplýsingar við innritun.
Ókeypis afpöntun
Ef þú hættir við getur þú afpantað herbergið með sólarhrings fyrirvara.
Morgunverður innifalinn
Það er veglegur morgunverður innifalinn í öllum herbergjaverðum þegar bókað er hjá okkur.

Bókunarbeiðni
Við svörum beiðni þinni við fyrsta tækifæri, alla virka daga.
Hagkvæm kjör
Með leitarvélinni okkar finnur þú hagkvæmustu kjörin á gistingu sem í boði eru.
Ekkert bókunargjald
Sparaðu þér skildinginn og slepptu við að greiða bókunargjald.
© 2022 Niko ehf. | Austurvegur 6 | 800 Selfoss | Kt. 590110-1750 | Netfang: hotel@sktpetri.is